Hringborðsumræður Reykjanes. Hringborðsumræður Reykjanes.
Kaupa Í körfu
Bryndís Gunnlaugsdótir "Efling starfsmenntunar er mikið hagsmunamál Suður- nesjabúa. Tryggja þarf að námið í sjómennsku, fiskvinnslu og fiskeldi í Fisktækniskólanum í Grindavík geti haldið áfram" Hratt hefur dregið úr atvinnuleysi á Suður- nesjum að undanförnu. Gróska er í sjávar- útvegi og ferðaþjónustu á svæðinu. Margs kon- ar frumkvöðla- og nýsköpunarstarf hefur skotið rótum. Góður árangur grunnskólanem- enda í samræmdu prófunum í haust hefur glatt fólk og skapað stolt í byggðunum. Suðurnesja- menn eru sannfærðir um að þeim sé að takast að vinna sig út úr erfiðleikunum sem verið hafa undanfarin ár. Þetta er meðal þess sem fram kom í hring- borðsumræðum um málefni Suðurnesja sem Morgunblaðið efndi til í tengslum við 100 daga hringferð blaðsins um landið. Greint er frá um- ræðunum á tveimur opnum í blaðinu í dag. Fram kom að tölulegur samanburður sem Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum lét vinna sýndi að íbúar svæðisins byggju við skarðan hlut í fjárveitingum til ýmissa þátta opinberrar þjónustu. Þessi mismunur væri al- veg óútskýrður. „Það er krafturinn í fólkinu sem gerir Suð- urnesin svo áhugaverð,“ sagði einn þátttakenda í umræðunum. „Það er búið að byggja upp sterka innviði á svæðinu og hvergi eru meiri tækifæri til uppbyggingar og atvinnusköp- unar,“ sagði annar.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir