Grindavík

Júlíus Sigurjónsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Grindavík

Kaupa Í körfu

Talsvert tjón varð á hafnarmannvirkjum í Grindavík á háflóði í gærmorgun. Þá urðu skemmdir á bílum, sem stóðu á bryggjunni í Grindavík og flutu um bryggjur og hafnarbakka þegar sjófyllurnar gengu yfir. Einnig kom skarð í sjávarkambinn við Hópsnes. Myndatexti: Það var erfitt að sjá að skipin lægju við bryggju í Grindavík vegna þess að sjór flæddi yfir hana. Landfestar nokkurra báta slitnuðu í atganginum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar