Tómas R. Einarsson bassaleikari og tónskáld

Einar Falur Ingólfsson

Tómas R. Einarsson bassaleikari og tónskáld

Kaupa Í körfu

Hljómplata Tómasar R. Einarssonar kontrabassaleikara, Bassanótt, hlýt- ur afar jákvæða gagnrýni í kólumb- íska vefritinu Solarlatinclub.com sem mun vera helsta vefsíðan þar í landi helguð latíntónlist spænskumælandi landa. Í gagnrýninni segir m.a. að Tómas sé framúrskarandi lagahöf- undur og platan líklega sú besta sem hann hafi sent frá sér. Latínsveit Tómasar er nýkomin aftur til Íslands eftir að hafa leikið á djasshátíð í Par- ís og norrænu menningarhátíðinni Les Boréalis í Caen. Tónleikarnir í Caen fá jákvæða gagnrýni í franska vefritinu Musicology og segir m.a. í henni að norðrið og suðrið mætist í tónlist Tómasar. Gagnrýnandi nefnir sérstaklega lagið „Janúar“ af Bassa- nótt og segir að áheyrendur hafi farið í ferð með kontrabassanum um hinn íslenska vetur í stígvélum, úlpu og með þykka ullarhúfu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar