Rýmið á milli sætanna er vel nýtt

Malín Brand

Rýmið á milli sætanna er vel nýtt

Kaupa Í körfu

Rýmið á milli sætanna er vel nýtt Iðulega ríkir mikil spenna á meðal áhugamanna þegar nýr Toyota Land Cruiser er sýndur. Það sama á við um hvers kyns breytingar sem verða á útliti bílsins, sama hversu litlar þær kunna að vera. Allt áhugafólk um þennan langlífa jeppa hefur skoðun á útlitsbreytingum Land Cruiser og það er ekkert undarlegt við það. Land Cruiser kom fyrst á markað árið 1951 og á sér því rúmlega sextíu ára sögu. Hann hefur verið afar vinsæll hér á landi og því ekki að undra að fólk hafi skoðun á útliti þessa jeppa. Það er raunar alveg ótrúlegt að skoða athugasemdakerfi erlendra spjallborða um útlitsbreytinguna því ljóst er að fólki verður raunverulega heitt í hamsi við hverja einustu breytingu sem gerð er, líkt og hollívúddstjarna hafi komið úr lýtaaðgerð og „allir“ hafi skoðun á útkomunni. Yfirleitt fer minnst fyrir þeim sem kunna að meta breytingarnar á Land Cruiser og þeir virðast hafa litla þörf fyrir að tjá sig á opinberum vettvangi, en ekki verður farið nánar út í þá sálma hér. Grill, ljós og felgur Land Cruiser hefur fengið andlitslyftingu, auk þess sem innréttingin er ný. Þó að talað sé um andlitslyftingu á það líka við um afturhluta bílsins en mest er breytingin þó að framanverðu. Vélin er sú sama, 3.0 D-4D og hann má fá beinskiptan 6 gíra eða með 5 þrepa sjálfskiptingu. Einnig er hægt að fá hann í VX-útgáfu með 4.0 V6. Verðið er frá 9.920.000 kr. til 14.690.000 kr. eftir gerðum (LX, GX, VX og VX+). Bíllinn sem prófaður var er VX-bíll með 3,0 lítra dísilvélinni sem er ágætlega öflug (190 hö) og hefur gegnum tíðina reynst afskaplega vel og sérlega sparneytin í þessum stóra trukki. Þó að vélin sé sú sama hefur framleiðandinn lagað sig að evrópskum stöðlum um útblástur og er CO2 útblástur þessa bíls 9% minni en hjá fyrirrennara hans. Einna mest áberandi í útlitsbreytingunum er sjálft grillið. Krómið í grillinu er nokkuð áberandi og meira en fyrr en þó ekki það mikið að það geri bílinn gleiðgosalegan á nokkurn hátt. Það er passlega mikið af krómi til að gefa bílnum fágaðan framenda nema í LX-bílnum sem er með svart grill. Fyrir þá sem eru mikið fyrir krómið skal tekið fram að hægt er að fá krómaðar speglahlífar sem aukabúnað

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar