FIH

FIH

Kaupa Í körfu

Kvöld dapurleika og trega og Rokkskáldið djassar Harmræna í bakgrunninum Í KVÖLD hefst þriggja daga dagskrá þar sem tónlist og kveðskapur verða sameinuð í Sölvasal Sólons Íslandusar og hefst dagskráin öll kvöldin kl. 21 Í kvöld og annað kvöld ber dagskráin yfirskriftina Kvöld dapurleika og trega. Flytjendur eru franski bandoneonleikarinn Olivier Manoury ásamt Einari Val Scheving trommuleikara, Kjartani Valdimarssyni píanóleikara, Tómasi R. Einarssyni bassaleikara og það er Fríða Björk Ingvarsdóttir sem flytur textana. Á fimmtudagskvöld er yfirskriftin Rokkskáldið djassar og þar mun Einar Már Guðmundsson lesa upp úr ljóðum sínum við undirleik kvartetts Tómasar R. Einarssonar, sem auk Tómasar skipa Óskar Guðjónsson saxófónleikari, Eyþór Gunnarsson píanóleikari og Matthías Hemstock trommuleikari. Rokkskáldið djassaði einnig á seinustu djasshátíð og fékk þá fínar undirtektir. ENGINN MYNDATEXTI.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar