KOL nýr veitingastaður

KOL nýr veitingastaður

Kaupa Í körfu

Túnfisk-Taco 100 gr túnfiskur 2 msk sesam-olía 4 msk sesamfræ 1 msk stökkt beikon 1 tsk lárperumauk – kryddað með límónu Stökkt corn taco Aðferð Lagið 7% saltpækil – hlutfallið er þá 1 ltr vatn á móti 7 gr af salti. Leggið túnfiskinn í pækilinn og látið liggja í u.þ.b. eina klst. Þerrið og skerið síðan í litla teninga. Steikið beikonið þar til stökkt og skerið í litla bita. Blandið næst öllu saman og smakkið til með sesam-olíu og salti eftir þörfum. Setjið loks lárperumaukið á stökkar tacoskeljarnar, síðan túnfisk-blönduna ofan á. Skreytið síðan að lokum með garðkarsa.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar