Djöflarnir - leikrit
Kaupa Í körfu
Guð, hjálpaðu mér í trúleysi mínu! Leikfélag Reykjavíkur frumsýnir Djöflana eftir Fjodor Dostojevskí í leikgerð Alexei Borodíns á Stóra sviði Borgarleikhússins í kvöld. Þýðandi er Ingibjörg Haraldsdóttir. Orri Páll Ormarsson ræddi bið Borodín, sem einnig leikstýrir sýningunni, og komst að því að hann ber djúpa virðingu fyrir Dostojevskí og hefur heillast að Íslandi. HAUSTIÐ 1869 var Fjodor Dostojevskí staddur, ásamt konu sinni, Önnu, í Dresden. Ungur bróðir Önnu var við nám í landbúnaðarskóla í nágrenni Moskvu þar sem komið hafði til óeirða og Dostojevskí-hjónin buðu piltinum í heimsókn í því skyni að forða honum frá því að lenda í hremmingum. Áhyggjur þeirra voru ekki ástæðulausar: Fáeinum vikum síðar var einn af skólafélögum piltsins myrtur með hrottalegum hætti af hópi stjórnleysingja undir forystu Nétsjajevs nokkurs, ungs útsendara Rússlandsdeildar Alþjóðlegu byltingarsamtakanna, sem stofnuð voru af þeim fræga manni Mikhaíl Bakúnín. Um þetta las Dostojevskí í rússneskum blöðum og fékk að auki upplýsingar um baksvið glæpsins hjá mági sínum. MYNDATEXTI:Hinn ærslafulli Pjotr Verkhovenskí (Friðrik Friðriksson) er ekki allur þar sem hann er séður. Með honum er faðir hans (Pétur Einarsson).
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir