Ný flotkví

Ásdís Ásgeirsdóttir
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Ný flotkví

Kaupa Í körfu

FYRSTA skipið var tekið upp í nýja flotkví Vélsmiðju Orms og Víglundar í nýju suðurhöfninni í Hafnarfirði í gærkvöldi. Mælifell, flutningaskip Samskipa, var tekið inn í kvína í öxuldrátt, málningu og almennt viðhald, að sögn Jóhanns Halldórssonar, vaktmanns hjá vélsmiðjunni. Auk nýju kvíarinnar hefur vélsmiðjan frá 10. janúar 1996 rekið aðra flotkví í Hafnarfjarðarhöfn og hefur þar fengið um 160 skip til viðgerða.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar