Tónelsk fjölskylda

Kristján Kristjánsson

Tónelsk fjölskylda

Kaupa Í körfu

Tónlistin er í fyrirrúmi hjá fjölskyldunni í Kristnesi 14 í Eyjafjarðarsveit, þeim Ellu Kristínu Jack og Skúla Torfasyni og börnum þeirra fimm, Kristínu Þóru 17 ára, Gyðu Hlín 16 ára, Theodóru 13 ára, Ómari Smára 11 ára og Róberti Jóni 9 ára. Öll leika börnin á hljóðfæri og hafa verið í tónlistarnámi frá 6-7 ára aldri, Skúli leikur á harmoniku og spilar með hljómsveit Félags harmonikuunnenda við Eyjafjörð og Ella Kristín syngur með nýstofnuðum kór í Eyjafjarðarsveit. Hún er hjúkrunarfræðingur og starfar á Kristnesspítala, en Skúli er tannlæknir og rekur stofu á Akureyri. Myndatexti: Kristín Þóra , 17 ára , hefur lært á þverflautu frá því hún var 8 ára og síðustu ár hefur hún haft óbó sem aukahljóðfæri. Tónlistarnám sitt hóf hún 7 ára gömul. myndvinnsla akureyri. tonlistarfjölskylda í eyjafjarðarsveit.litur. mbl. kristjan.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar