Pharma Omega gefur gjöf

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Pharma Omega gefur gjöf

Kaupa Í körfu

Landspítalinn deild 11. Rannsóknastofa Landspítalans í meltingarsjúkdómum hefur fengið veglega gjöf frá Omega Farma ehf. Um er að ræða nýjustu útgáfu af sýrustigsmælingatæki sem gerir kleift að mæla samtímis sýrustig í vélinda og/eða maga á nokkurra sekúndna fresti allan sólarhringinn. Tækið skráir og geymir sýrustigsmælingarnar á rafrænu formi sem síðan er unnið úr með aðstoð tölvuforrits. Tæki sem þessi eru notuð til rannsókna á vandamálum sem tengst geta sýrubakflæði í vélinda s.s. brjóstsviða, astma, hæsi, hósta og brjóstverkjum. Einnig nýtist tækið til rannsókna á virkni sýruhamlandi lyfja. Gjafir sem þessar koma sér vel nú á tímum þegar tækjakaup til Ríkisspítala eru skorin við nögl, segir í fréttatilkynningu

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar