Rimaskóli

Ásdís Ásgeirsdóttir
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Rimaskóli

Kaupa Í körfu

Föndrað, dansað, leikið og sungið á opnum dögum í Rimaskóla Foreldrum boðið í skólann NEMENDUR í Rimaskóla buðu fjölskyldum sínum að koma í skólann í gær, en þar var opið hús þar sem nemendur sýndu afrakstur verkefnavinnu sem fram fór á opnum dögum skólans í vikunni. Á miðvikudag og fimmtudag var hefðbundin kennsla brotin upp í skólanum og nemendum skipt í hópa sem unnu saman að ýmsum fjölbreyttum verkefnum. Afrakstur vinnu nemendanna var svo í gær. Allar bekkjardeildir skólans tóku þátt í opnu dögunum og fengu nemendur að velja hvað þeir tækju sér fyrir hendur. MYNDATEXTI: Sjö stelpur úr níunda bekk B sýndu frumsaminn dans.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar