Samlestur söngleiksins Kysstu mig Kata

Samlestur söngleiksins Kysstu mig Kata

Kaupa Í körfu

Kysstu mig Kata í Borgarleikhúsinu FYRSTI samlestur á söngleiknum Kysstu mig Kata eftir Cole Porter fór fram í Borgarleikhúsinu á mánudag en fyrirhugað er að frumsýna verkið á Stóra sviðinu 25. mars næstkomandi. Í söngleik þessum er lýst vandræðum sem skapast þegar stormasamt einkalíf aðstandenda uppsetningar á Snegla tamin eftir Shakespeare hrærir upp í framgangi sýningarinnar og ástarflækjur, sviðsskrekkur og handrukkarar þvælast inn í leikritið. MYNDATEXTI: Aðalleikendurnir, Egill Ólafsson og Jóhanna Vigdís Arnardóttir, hlýða á mál leikstjóra síns, Þórhildar Þorleifsdóttur, á fyrsta samlestri söngleiksins Kysstu mig Kata.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar