Harmonikubræður

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Harmonikubræður

Kaupa Í körfu

Bræður leika á harmoníkur í Salnum RÚSSNESKU tvíburabræðurnir Yuri og Vadim Fjodorov halda harmoníkutónleika í Salnum laugardaginn 29. janúar kl. 16. Þeir bræður Yuri og Vadim Fjodorov vöktu athygli hér á landi í júní síðastliðnum er þeir komu fram á landsmóti harmoníkuunnenda á Siglufirði og einnig er þeir héldu tónleika í Salnum. Tónleikarnir á laugardaginn eru um klukkustundar langir án hlés og á efnisskránni eru verk af ýmsum toga sérstaklega valin til að kynna harmoníkuna sem hljóðfæri og þá möguleika sem hún býr yfir. MYNDATEXTI: Yuri og Vadim Fjodorov.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar