Sinfónían

Jim Smart

Sinfónían

Kaupa Í körfu

Sinfóníuhljómsveit Íslands kom í fyrsta sinn saman til æfinga í Ými, nýju tónlistarhúsi Karlakórs Reykjavíkur, um helgina. Að sögn Helgu Hauksdóttur, tónleikastjóra SÍ, líkaði hljómsveitinni aðstaðan afskaplega vel. "Ýmir er vel heppnað hús, umhverfið skemmtilegt og hljómurinn góður. Við eigum örugglega eftir að nýta okkur það oftar í framtíðinni þegar við þurfum að fara úr Háskólabíói, eins og um helgina. Ýmir er þægilegur valkostur," segir Helga.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar