Boeing

Boeing

Kaupa Í körfu

Ísland er annar viðkomustaður nýrrar Boeing 757-300-þotu sem verksmiðjurnar eru nú að kynna flugrekendum og flugmálayfirvöldum en þotan hélt í morgun áleiðis til Manchester í Englandi og síðan áfram til nokkurra fleiri landa í Evrópu og Asíu. Myndatexti: Norm Matheson (til vinstri) hefur komið mikið við sögu hönnunar á 757 þotunum og Michael B. Bair stýrði til skamms tíma 757 deildinni en hefur nýverið tekið við stöðu markaðsstjóra Boeing-fyrirtækisins.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar