Snjómokstur

Ásdís Ásgeirsdóttir
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Snjómokstur

Kaupa Í körfu

Snjómokstur. Víða á höfuðborgarsvæðinu má enn sjá bifreiðir á kafi í snjósköflum eftir illviðrið um helgina. Þeir Sigurður og Rögnvaldur unnu af kappi við að moka út bíl systur Sigurðar þegar ljósmyndari Morgunblaðsins átti leið hjá. Skóflurnar sem þeir félagar notuðu voru hvorki stórar né öflugar, en þeir létu það ekki á sig fá og luku verkinu eins og til var ætlast. Haldi áfram að snjóa kann þó að reynast nauðsynlegt að fjárfesta í betri skóflum. Þokkalegt veðurútlit er suðvestanlands næstu daga.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar