Álfabikar

Þorkell Þorkelsson

Álfabikar

Kaupa Í körfu

Álfar koma eilítið við sögu margnota bikars sem konur nota í auknum mæli í stað dömubinda og tíðatappa. Fjöldi íslenskra kvenna hefur keypt sér gripinn. Hrönn Marinósdóttir hitti umboðsmanninn, fór í saumaklúbb og talaði við fólk úr heilbrigðisstétt vegna umræðu um hættuleg efni í dömubindum og tíðatöppum. Á kynningu í heimahúsi í Grafarvogi situr Anna Dóra í hópi kvenna og útskýrir eiginleika álfabikarsins. Gestgjafinn Ásta Bjarney hefur notað bikarinn í rúmt ár og er afar ánægð með hann. "Í byrjun átti ég í smávegis erfiðleikum en nú get ég ekki án hans verið. Gallar eru engir. Aðallega er ég þó fegin því að losna við allt umstangið sem fylgir dömubindunum." Myndatexti: "Álfabikarinn er um 5 sm að lengd og er komið fyrir neðarlega í leggöngunum," segir Anna Dóra.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar