Krakkar

Ásdís Ásgeirsdóttir
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Krakkar

Kaupa Í körfu

Kennsla var felld niður í Menntaskólanum við Sund í gær en nemendur skólans fóru og unnu í fyrirtækjum úti um alla borg með það að markmiði að afla fjár fyrir samtökin Barnaheill. Rúmlega 600 nemendur unnu við ýmis störf, bæði hjá stofnunum og fyrirtækjum sem voru beðin að leggja verkefninu lið eða þar sem þau hafa unnið á sumrin eða með skóla. Fyrirtækin greiða 3.500 krónur fyrir dagsverkið og er reiknað með að um ein og hálf til tvær milljónir króna safnist. Ágóðinn rennur óskertur til verkefna Barnaheilla bæði innlendra og erlendra.Einar Geir Þórðarson, Emil Hólm Halldórsson og Helgi Már Jónsson eru 17 og 18 ára og unnu á leikskólanum Nóaborg í gær. Myndatexti: Helgi Már Jónsson var einn af rúmlega hundrað strákum úr Menntaskólanum við Sund sem vann á leikskóla í gær.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar