GSM

Jim Smart

GSM

Kaupa Í körfu

Síminn GSM afhenti í gær Ásdísi Jennu Ástráðsdóttur nýjan farsíma af gerðinni Nokia 6150 í stað sams konar farsíma sem var stolið af henni í Kringlunni sl. föstudag. Ásdís Jenna, sem er fjölfötluð og bundin við hjólastól, gat enga björg sér veitt þegar ungur piltur veittist að henni og hrifsaði af henni farsímann. Hún notar símann mikið og var því fegin að vera komin á ný í samband við vini og vandamenn með nýja símanum. Það voru Ólafur Þ. Stephensen, forstöðumaður upplýsinga- og kynningardeildar Landssímans, og Guðjón Pétursson, markaðsfulltrúi á farsímasviði Landssímans, sem afhentu Ásdísi Jennu símann.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar