Shakespeare - Iðnó - SVR

Þorkell Þorkelsson

Shakespeare - Iðnó - SVR

Kaupa Í körfu

Að þekkja sinn Sjeikspír Sjeikspír eins og hann leggur sig verður frumsýnt í Iðnó í kvöld. Það er SVR, Sjeikspírvinafélag Reykjavíkur, sem stendur að sýningunni með stuðningi Leikfélags Íslands en án þess hefði sýningin ekki orðið að veruleika. Hávar Sigurjónsson hitti vinina þrjá ásamt leikstjóra. SJEIKSPÍRVINAFÉLAG Reykjavíkur er þriggja manna leikhópur sem leikur Sjeikspír eins og hann leggur sig á 97 mínútum. Leikararnir þrír eru Friðrik Friðriksson, Halldór Gylfason og Halldóra Geirharðsdóttir en leikstjóri og listrænn leiðtogi er Benedikt Erlingsson. Fyrsta spurningin sem þau leggja fyrir sig þegar viðtalið hefst er hvort þau eigi að leysa frá skjóðunni í einlægni eða tala í nafni Sjeikspírvinafélagsins. Segja satt eða skrökva. Sameiginleg niðurstaða þeirra er að segja satt. MYNDATEXTI: "Og þú, Brútus." Júlíus Sesar afgreiddur í snatri.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar