Biðröð

Ásdís Ásgeirsdóttir
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Biðröð

Kaupa Í körfu

Biðröð eftir miðum á uppfærslu Helga Tómassonar á Svanavatninu Nær uppselt á fjórum tímum. RÍFLEGA tvö þúsund miðar á fimm sýningar San Francisco-ballettsins á Svanavatninu í Borgarleikhúsinu í maí seldust á fjórum klukkutímum í gær og voru aðeins eitt til tvö hundruð miðar eftir þegar miðasölu var lokað í gær. Miðasala hófst klukkan 13 og hafði þá þegar myndast löng röð við Upplýsingamiðstöð ferðamála í Torfunni, þar sem salan fór fram. MYNDATEXTI: Löng röð myndaðist við Upplýsingamiðstöð ferðamála. Allir fengu þó miða á endanum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar