Skækjan Rósa - Leikhópurinn Norðanljós

Kristján Kristjánsson

Skækjan Rósa - Leikhópurinn Norðanljós

Kaupa Í körfu

Leikhópurinn Norðanljós sýnir í samvinnu við Leikfélag Akureyrar Skækjan Rósa á fjölunum fyrir norðan LEIKHÓPURINN Norðanljós í samvinnu við Leikfélag Akureyrar frumsýnir í kvöld, laugardagskvöldið 19. febrúar, leikritið Skækjan Rósa eftir José Luis Martín Descalzo í þýðingu Örnólfs Árnasonar. Um er að ræða einleik og fer Saga Jónsdóttir með hlutverk skækjunnar Rósu. Leikstjóri er Helga E. Jónsdóttir og leikmynd og búninga gerir Edvard Fuglø, en hann er frá Færeyjum. Þau þrjú mynda Leikhópinn Norðanljós, en nafn sitt dregur hann m.a. af því að Helga og Saga eru að norðan, frá Akureyri, og Edvard telst einnig vera að norðan, er frá Klakksvík í Færeyjum. Feður þeirra stallsystra, Jón Kristinsson, faðir Helgu, og Jón Ingimarsson, faðir Sögu, létu báðir til sín taka á árum áður hjá Leikfélagi Akureyrar. MYNDATEXTI: Saga Jónsdóttir, Edvard Fuglø og Helga E. Jónsdóttir bera saman bækur sínar en þau þrjú mynda Leikhópinn Norðanljós og er uppsetning leikritsins um skækjuna Rósu fyrsta verkefni hópsins. myndvinnsla akureyri. skækjan rósa hjá la. saga jónsdóttir, edvard fuglo og helga jónsdóttir bera saman bækur sínar. litur. mbl. kristjan.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar