Heiðarborg - Endurskinsvesti

Ásdís Ásgeirsdóttir
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Heiðarborg - Endurskinsvesti

Kaupa Í körfu

Sparisjóður vélstjóra Gefa leikskólum í Árbæ endurskinsvesti SPARISJÓÐUR vélstjóra, hefur um nokkurt skeið séð börnum á leikskólanum Heiðarborg í Árbæ fyrir endurskinsvestum svo þau sjáist örugglega í umferðinni. Vestin hafa reynst vel og hefur framtak SPV hlotið góðar undirtektir barna, foreldra og starfsfólks leikskólans. SPV mun á næstunni færa öllum leikskólum í Árbæ endurskinsvesti en myndin var tekin í leikskólanum Rauðaborg, Viðarási 9, þegar Sigurður J. Atlason, þjónustustjóri útibús Sparisjóðs vélstjóra í Rofabæ afhenti börnunum 100 endurskinsvesti. Er það von SPV að þau muni auka mjög öryggi barnanna í umferðinni, segir í fréttatilkynningu. ENGINN MYNDATEXTI.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar