Loðnu dælt - Faxi RE

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Loðnu dælt - Faxi RE

Kaupa Í körfu

"Hrognin falleg og fullþroskuð" Vinnsla loðnuhrogna víða í fullum gangi VINNSLA loðnuhrogna er nú í fullum gangi víða um land en hrognatakan stendur aðeins yfir í stuttan tíma og lýkur væntanlega í næstu viku. Hjá Faxamjöli hf. í Reykjavík hóft hrognavinnslan um síðustu helgi og er stefnt á að framleiða um 700 tonn. Faxi RE landaði um 1.100 tonnum hjá Faxamjöli hf. í Reykjavík í fyrradag en meira en 30 klukkustundir tekur að landa úr skipinu þegar verið er að "kreista" hrognin úr loðnunni eins og það er kallað, en löndunin tekur mun skemmri tíma ef loðnan fer öll í bræðslu. MYNDATEXTI: Loðnunni dælt úr Faxa RE til hrognakreistingar hjá Faxamjöli hf. í Reykjavík.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar