skautasýning

Sverrir Vilhelmsson

skautasýning

Kaupa Í körfu

SKAUTAFÉLAG Reykjavíkur verður með fyrstu listskautasýninguna, sem haldin hefur verið hér á landi, 18. mars. Sýningin, sem ber nafnið ÍS 2000, verður í Skautahöllinni í Laugardal og koma hingað til lands skautapör frá Bretlandi og Tékklandi til að sýna listir sínar, ásamt því að íslenskir hópar sýna. Stúlkurnar fjórar á myndinni hér að ofan, voru mættar á æfingu í Skautahöllinni klukkan átta í gærmorgun, til að æfa sig fyrir sýninguna - þær eru Ólöf Ólafsdóttir, Snædís Lilja Ingadóttir, Kristín Harðardóttir og Linda Viðarsdóttir.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar