Mats Wibe Lund og Gen.is

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Mats Wibe Lund og Gen.is

Kaupa Í körfu

Myndasafn Mats Wibe Lund hefur sameinast myndasafni Gen.is - Genalogia Islandorum hf. sem mun starfrækja Íslenska myndasafnið og myndabanka á Netinu. Jafnframt liggur fyrir samstarfssamningur milli Mats Wibe Lund og Gen.is. Með kaupunum tryggir Gen.is sér aðgang að um 300 þúsund ljósmyndum, bæði svart-hvítum sem í lit sem verið hafa í eigu Mats Ljósmynda ehf. og dótturfyrirtækis þess, Íslenska myndasafnsins ehf. Myndatexti: Sitjandi f.v. Mats Wibe Lund ljósmyndari, Tryggvi Pétursson, stjórnarformaður Gen.is og Christopher Lund, forstöðumaður Íslenska myndasafnsins. Standandi f.v.: Þorsteinn Jónsson, útgáfustjóri Gen.is, Jóhann Páll Valdimarsson, framkvæmdastjóri Gen.is og Hilmar Bergmann, fjármálastjóri Gen.is.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar