Netklúbbur Flugleiða

Jim Smart

Netklúbbur Flugleiða

Kaupa Í körfu

Færri komust að en vildu á almennum kynningarfundi um starfsemi Netklúbbs Flugleiða í bíósal Hótels Loftleiða. Var því haldin aukakynning en alls mættu á þriðja hundrað manns. "Við höfum verið að fá margar fyrirspurnir um vefinn okkar og Netklúbbinn undanfarna mánuði og kynningarfundurinn var haldinn til að fræða viðskiptavini okkar um hvernig vefurinn og Netklúbburinn virkar," segir Símon Pálsson hjá Flugleiðum. "Viðbrögðin voru á þann veg að við munum halda fleiri fundi á næstunni bæði hér á höfuðborgarsvæðinu og einnig á landsbyggðinni." Myndatexti: Færri komust að en vildu á kynningu á vefnum og Netklúbbi Flugleiða sl. laugardag og var haldin aukakynning síðar um daginn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar