Katrín Sigurðardóttir við vegginn á Kjarvalsstöðum

Jim Smart

Katrín Sigurðardóttir við vegginn á Kjarvalsstöðum

Kaupa Í körfu

Skáldlegur raunveruleiki Ráðhildur Ingadóttir og Biogen taka við veggnum góða á Kjarvalsstöðum af Katrínu Sigurðardóttur í dag. Orri Páll Ormarsson kynnti sér hvað verið er að bauka á safninu. OP HAFA verið skorin í skjannahvítan vegginn. Þrjú talsins. Niður falla plötur, einskonar vinnuborð, þar sem getur að líta líkön sem virka öfugsnúin þar til maður lítur í spegil. Þar eru þau spegluð um ás, misjafnlega langdræg. Eitt dregur langar leiðir, alveg niður að sjó, annað eitthvað áleiðis en það þriðja ekki einu sinni út úr byggingunni. Nú sér maður þetta! Hér eru á ferð líkön af bókasafni Kjarvalsstaða og nánasta umhverfi hússins. Blaðamaður er sumsé staddur í miðrýminu og horfir í gegnum vegginn. MYNDATEXTI: Snjókorn falla. Katrín Sigurðardóttir myndlistarmaður leggur lokahönd á verk sitt á veggnum breytilega í miðrými Kjarvalsstaða.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar