Háholt eftir bensínsprengju

Jim Smart

Háholt eftir bensínsprengju

Kaupa Í körfu

Sprenging varð þegar kveikt var í bensínbrúsa í stigagangi fjölbýlishúss við Háholt í Hafnarfirði í fyrrinótt. Um þrjátíu manns búa í húsinu í sex íbúðum og varð fólki mjög hverft við þegar sprengingin varð. Þustu margir út á náttklæðunum, en engan sakaði. Brúsanum var komið fyrir milli útidyrahurðar og millihurðar þar sem eldur var borinn að honum. Hann sprakk og talsverður hvinur heyrðist og mikill svartur reykur myndaðist í stigaganginum. Nokkur reykur barst einnig inn í íbúðir á efstu hæð hússins. Myndatexti: Nokkrar skemmdir hlutust af í anddyri fjölbýlishússins við sprenginguna.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar