Geysisgos í Langholtskirkju

Geysisgos í Langholtskirkju

Kaupa Í körfu

Fullt hús var á styrktartónleikum klúbbsins Geysis sem haldnir voru í Langholtskirkju á sunnudag. Að sögn Önnu Valdemarsdóttur framkvæmdastjóra klúbbsins gekk Geysisgosið sem klúbburinn stóð fyrir um helgina, vonum framar, en auk tónleikanna var opið hús í nýju húsnæði klúbbsins við Ægisgötu á laugardag. "Þetta var alveg ofboðslega skemmtilegt og eru allir í skýjunum yfir því hvernig til tókst," segir Anna. Myndatexti: Margir heimsóttu nýja húsnæði klúbbsins Geysis við Ægisgötu á laugardag, en þar var opið hús og buðu klúbbmeðlimir gestum upp á kaffi og meðlæti.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar