Rusl hreinsað við Miklubraut

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Rusl hreinsað við Miklubraut

Kaupa Í körfu

ÓVANALEG snjóalög þessa vetrar hafa gert mörgum gramt í geði. Hlýindi vikunnar hafa þó létt á sköflum og klakabrynjum á götum og gangstéttum borgarinnar og tækifæri gefast nú til að sinna þeim fyrstu verkum sem vorleg geta talist. Þegar hlýindi og rigning höfðu svipt hvítri ábreiðu vetrarins af jörðinni, lagði þessi starfsmaður borgarinnar af stað til að hreinsa við Miklubrautina það rusl sem undan snjónum kemur og ekki er talið til prýði á götum og gangstéttum borgarinnar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar