Samfylkingin

Kristján Kristjánsson

Samfylkingin

Kaupa Í körfu

ÞINGFLOKKUR Samfylkingarinnar hefur verið á ferð um Norðurlands eystra og var haldinn þingflokksfundur á Hótel Húsavík á fimmtudagskvöld. Þá skoðuðu þingflokksmenn fyrirtæki á Húsavík á föstudagsmorgun, m.a. Íslenskan harðvið og heimsóttu Heilbrigðisstofnunina. Þá lá leiðin til Akureyrar þar sem víða var komið við, m.a. í framhaldsskólunum, Menntaskólanum á Akureyri og Verkmenntaskólanum á Akureyri og einnig brugðu þeir sér í Háskólann á Akureyri þar sem þessi mynd var tekin en hér hlýða þeir á erindi Steingríms Jónssonar, haffræðings á Hafrannsóknastofnun á Akureyri, en hann ræddi m.a. um vistfræði í Eyjafirði. Á myndinni má sjá Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, Svanfríði Jónasdóttur, Össur Skarphéðinsson og Jóhann Árssælsson.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar