Kisa í tré

Ásdís Ásgeirsdóttir
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Kisa í tré

Kaupa Í körfu

Kötturinn fer eigin leiðir. KÖTTURINN fer sínar eigin leiðir, eins og óljúgfróðir menn hafa löngum vitað. Þessi fallegi kisi klifraði í trjám á Sauðárkróki í gær; máske til að kanna fuglalífið betur ellegar til þess að hvíla loppurnar á ískaldri fönninni sem nóg er af á Króknum um þessar mundir, rétt eins og annars staðar á landinu. Stingandi augnaráð hans er um leið heillandi og háskalegt og minnir ofurlítið á skyldleikann við stærri kattardýr úti í hinum stóra heimi. (köttur uppí tré á Saudárkróki )

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar