Árbæjarsafn - Ingólfur Arnarson

Jim Smart

Árbæjarsafn - Ingólfur Arnarson

Kaupa Í körfu

Ingólfur er kominn heim Í ÁRBÆJARSAFNI verður opnuð sýningin Saga Reykjavíkur - frá býli til borgar í dag kl. 16. Sýningin er í stærsta húsi safnsins, Lækjargötu 4. Þar verður saga Reykjavíkur rakin frá landnámi til nútímans og byggir sýningin að stórum hluta á rannsóknarvinnu Árbæjarsafns, fornleifauppgreftri í Aðalstræti og Viðey, rannsóknum á sögu Innréttinganna, minjum 19. og 20. aldar og byggingarsögu borgarinnar. MYNDATEXTI: Ingólfi Arnarsyni landnámsmanni fundinn staður á sýningunni í Árbæjarsafni. Það er Anna Lísa Guðmundsdóttir, deildarstjóri Árbæjarsafns, sem hagræðir hér Ingólfi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar