Heimiliskynning - Sýningin Matur 2000

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Heimiliskynning - Sýningin Matur 2000

Kaupa Í körfu

Sýningin Matur 2000 stendur fram á sunnudag 200 fyrirtæki sýna vörur og þjónustu Harðfiskflögur, sinnep með sólþurrkuðum tómötum, jalapeno-ostastangir og ferskt sushi er meðal nýjunga á sýningunni Matur 2000 sem nú stendur yfir um helgina. Það eru hátt í 200 fyrirtæki sem sýna vörur og þjónustu á sýningunni Matur 2000 sem stendur yfir í Tennishöllinni í Kópavogi og lýkur á sunnudagskvöld. Auk þess sem gestum sýningarinnar gefst kostur á að kynna sér nýjungar geta þeir bragðað á ýmsu góðgæti eins og fersku pasta, nýbökuðu brauði, kökum og nýlöguðu kaffi. Boðið er upp á sýnikennslu í blómaskreytingum og haldnar verða tískusýningar á samkvæmisfatnaði og fatnaði fyrir brúðkaup. Þá munu gestakokkar elda fyrir gesti og svara spurningum. MYNDATEXTI: Systurnar Ásdís og Hildur Einarsdætur hjá fyrirtækinu Heimapizzu voru að kynna ofn til að baka í pítsur. Það tekur um fjórar mínútur að baka 12 tommu pítsu með þessum hætti og einnig er hægt að hita upp frosnar pítsur. Þá er líka hægt að baka brauð eins og pítubrauð, naanbrauð og tortillur í pítsuofninum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar