Heimiliskynning - Sýningin Matur 2000

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Heimiliskynning - Sýningin Matur 2000

Kaupa Í körfu

Sýningin Matur 2000 stendur fram á sunnudag 200 fyrirtæki sýna vörur og þjónustu Harðfiskflögur, sinnep með sólþurrkuðum tómötum, jalapeno-ostastangir og ferskt sushi er meðal nýjunga á sýningunni Matur 2000 sem nú stendur yfir um helgina. Það eru hátt í 200 fyrirtæki sem sýna vörur og þjónustu á sýningunni Matur 2000 sem stendur yfir í Tennishöllinni í Kópavogi og lýkur á sunnudagskvöld. Auk þess sem gestum sýningarinnar gefst kostur á að kynna sér nýjungar geta þeir bragðað á ýmsu góðgæti eins og fersku pasta, nýbökuðu brauði, kökum og nýlöguðu kaffi. Boðið er upp á sýnikennslu í blómaskreytingum og haldnar verða tískusýningar á samkvæmisfatnaði og fatnaði fyrir brúðkaup. Þá munu gestakokkar elda fyrir gesti og svara spurningum. MYNDATEXTI: Matreiðslumaðurinn Peter Manina kom hingað til lands frá Ítalíu til að kynna fyrir gestum sýningarinnar vörur frá Sacla en það eru m.a. pastasósur, rautt og grænt pestó og síðan það sem kallast L'Antipastó og eru t.d. sólþurrkaðir tómatar, villtir sveppir, kryddlegin þistilhjörtu, grænar og svartar ólífur, svo og blönduð paprika.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar