Gerði upp gamla flugvél.

Þórður

Gerði upp gamla flugvél.

Kaupa Í körfu

Helgi Rafnsson, flugvirki og spilmaður hjá Landhelgisgæslunni, hefur unnið að því undanfarið að gera upp gamla flugvél. Nefnist flugvélin TF-MEY og er af gerðinni Piper PA-28-180 Cherokee. Alls hafa 37 Piper PA-28 verið skráðar á Íslandi og kom sú fyrsta árið 1964. Flugvélin var fyrst smíðuð árið 1966, en hún kom til landsins árið 1974. Var henni flogið mikið í kennsluflugi fram til ársins 1988, er henni hlekktist á í flugtaki við Dagverðará, þar sem hún rann fram af flugbrautinni. Aðspurður segir hann að uppgerðin hafi tekið um 4 ár í hjáverkum. Nú er hann búinn að fljúga vélinni í um 1 tíma, en við taki 25 tíma flug prófanir áður en að vélin fær fullt leyfi. Fyrstu 5 tímana verður hann að fljúga vélinni einn, en næstu 20 tíma má flugréttindamaður koma með. Eftir það má hver sem er þiggja far. Er vélin skráð sem experimental, en það mætti þýða sem heimasmíði. Til þess að flugvél fáist flokkuð sem experimental þarf að endursmíða 51% af henni eða meira. Er þetta í fyrsta skipti á Íslandi að vél sem er að semi monocoque (hálf skellaga/úr áli) gerð sé smíðuð upp að svo miklu leyti, en algengara er að vélar af turnlaga byggingu (truss type) séu gerðar upp. Það eru dúklagðar flugvélar og er sú algengasta Piper Cub sem margir þekkja. Var meðal annars skipt um botn á vélinni og annar vængurinn smíðaður upp sem og flapar og hallastýri Einnig var mótorinn gerður upp, en hann er 180 hestöfl. Ný innrétting var svo sett í vélina sem og mælaborð. Helgi var mjög ánægður með fyrsta flugið eftir uppgerð og sagði hann að það kæmi á óvart hversu hratt vélin gæti flogið í farflugi. MBL/Þórður.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar