Menntaskólinn við Hamrahlíð

Jim Smart

Menntaskólinn við Hamrahlíð

Kaupa Í körfu

Gagnkvæm nemendaskipti Kynna Ísland að för lokinni Ómetanlegt að kynnast landi og þjóð Menntaskólanemar - Níu nemendur og þrír kennarar úr Agnebergsgymnasiet í Uddevalla í Svíþjóð voru nýlega í ferð hér á landi, en heimsóknin er liður í gagnkvæmum nemendaskiptum sænskra og íslenskra menntaskólanema. Sveinn Guðjónsson hitti ferðalangana að máli og forvitnaðist nánar um nemendaskiptin. MARGT er líkt með okkur og íslenskum menntaskólanemum. Helsti munurinn er sá að íslensku krakkarnir hugsa meira um fatatískuna en við, þau eru meira fyrir "merkjavöruna" og ef til vill dálítið kaupglaðari en sænskir unglingar," sögðu þau Sandra Medina og Mathias Antonsson, er blaðamaður Morgunblaðsins hitti þau að máli í Menntaskólanum við Hamrahlíð þar sem þau voru í hópi í skólafélaga úr Agnebergs-menntaskólanum í Uddevalla í Svíþjóð. MYNDATEXTI: Mathias Antonsson og Sandra Medina ásamt Sigrúnu Helgadóttur Hallbeck sænskukennara, sem ásamt Ingegerd Narby sænskukennara hefur haft veg og vanda af undirbúningi og framkvæmd nemendaskiptanna hér á landi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar