Candice og Genna í fótabaði

Candice og Genna í fótabaði

Kaupa Í körfu

Candice Westman og Genna Toppan eru frá Toronto í Kanada og hafa nýlokið námi. Í tilefni af því brugðu þær vinkonur sér í 10 daga ferð til Reykjavíkur. Þær gengu fram á Kviku á Seltjarnarnesi sem er heitur pottur við norðurstöndina og skelltu sér í fótabað. Ólöf Nordal, Kvika Ólöf Nordal - KvikaÁr: 2004-2005 Efni: Grágrýti Stærð: 80 x 200 x 200 cm. Staðsetning: Kisuklappir Pantað í september 2004 af Menningarnefnd Seltjarnarness, sett upp við Kisuklappir í júní 2005 Útilistaverk Ólafar Nordal (fædd 1961) er gert úr heilum grágrýtissteini sem í er sorfin hringlaga fótbaðs- eða vaðlaug. Laugin er lýst upp með mildu rafljósi að innanverðu og í hana rennur stöðugt óblandað, forkælt jarðhitavatn úr borholum Seltjarnarness, en það hefur einstaka samsetningu og jafnvel lækningamátt. Ólöf er fjölhæfur listamaður sem hefur unnið með margs konar efni. Viðfangsefni sín sækir hún gjarnan í þjóðlega arfleifð og menningarleg minni sem hún setur í nútímalegt samhengi. Náttúran og tengsl okkar við landið eru henni einnig hugleikin. Í Kviku vísar hún til fornrar laugarhefðar Íslendinga um leið og hún hvetur fólk til að upplifa hita og kraft jarðar með því að fara úr sokkum og skóm og verða eitt með náttúrunni í fjöruborðinu. Þannig verður það þátttakendur í eins konar gjörningi „á mörkum byggðar og náttúru, lands og sjávar, himins og jarðar”, segir listakonan. „Með heita fætur streymir blóðið um kroppinn, líkamleg og andleg skynjun vex, næmi fyrir umhverfinu vaknar og tengsl við náttúruöflin myndast.”

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar