Omega

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Omega

Kaupa Í körfu

Lyfjafyrirtækið Omega Farma ehf. hefur ákveðið að verða við áskorun herra Karls Sigurbjörnssonar, biskups Íslands, og Hjálparstarfs kirkjunnar um aðstoð við að leysa indversk börn úr þrælaánauð. Omega Farma afhenti á þriðjudag biskupi Íslands eina milljón króna til að leysa allt að 200 börn úr skuldaánauð og skapa þeim nýtt líf til frelsis, lærdóms og athafna, sem þau annars færu á mis við. Myndatexti: Stanley Pálsson stjórnarformaður og Friðrik Steinn Kristjánsson, framkvæmdastjóri Omega Farma, afhentu Karli Sigurbjörnssyni, biskupi Íslands, framlagið.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar