Norðurál-Hvalfirði-Ferstikla

Jim Smart

Norðurál-Hvalfirði-Ferstikla

Kaupa Í körfu

Söluskálinn Ferstikla lifnar á nýjan leik Hvalfjörður að verða ferðamannasvæði Þegar Hvalfjarðargöngin voru opnuð dró mjög úr allri umferð um Hvalfjörðinn. Þar með var kippt rekstrargrundvelli undan áningarstöðum ferðamanna. Nú á hins vegar að blása nýju lífi í slíka þjónustu. NÝIR rekstraraðilar söluskálans Ferstiklu í Hvalfirði hafa blásið nýju lífi í starfsemina eftir að viðskiptin höfðu hrunið gersamlega í kjölfar þess að Hvalfjarðargöngin voru tekin í notkun fyrir tæpum tveimur árum. Umferð ferðamanna um Hvalfjörðinn virðist vera að aukast og telja þau Hugrún Vilhjálmsdóttir og Eyþór Arnórsson, sem tóku við rekstri Ferstiklu í október sl., að verulegir möguleikar felist í markaðssetningu Hvalfjarðar sem ferðamannastaðar og að tilvalið sé fyrir íbúa höfuðborgarsvæðisins að fara í sunnudagsbíltúr fyrir Hvalfjörð og fara göngin heim á ný. MYNDATEXTI: Thomas Möller, Hugrún Vilhjálmsdóttir, Gunnar Sigurðsson og Eyþór Arnórsson fyrir framan Ferstikluskála í Hvalfirði.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar