Eftirlýst sólin faldi sig í Fjarðabyggð í gær

Sigurður Aðalsteinsson

Eftirlýst sólin faldi sig í Fjarðabyggð í gær

Kaupa Í körfu

Það fór mest í 20,6 á mælinum og blankalogn. Þetta er alveg draumadagur,“ sagði Eva Hafdís Ásgrímsdóttir, starfsmaður sundlaugarinnar í Neskaupstað, seinnipart dags í gær þegar veðrið lék við heimamenn og gesti. Þrátt fyrir að Sunn- lendingar muni vart þá tilfinningu að láta geisla sólarinnar leika um fáklæddan kroppinn hefur sú heiðgula heiðrað aðra landshluta með nær- veru sinni og að sögn Evu hafa íbúar Neskaups- staðar ekki haft yfir neinu að kvarta sl. daga. Krakkarnir í bænum hafa einnig svamlað í volgum sjónum á loftdýnum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar