Víkurskarð

Kristján Kristjánsson

Víkurskarð

Kaupa Í körfu

Fjölmargir landsmenn voru á faraldsfæti um páskahelgina og ófáir leituðu til fjalla. Nokkuð er um að fólk bregði sér með vélsleða, skíði eða venjulega sleða á Víkurskarðið þar sem jafnan er nægur snjór. Á páskadag var þar fólk að leika sér í snjónum þrátt fyrir töluverða ofankomu en það lét það lítið á sig fá. Þar eru engar skíðalyftur og því kom sér vel að hafa vélsleða til að draga þessa hefðbundnu sleða. Jón Gunnar Traustason og fjölskylda voru á Víkurskarðinu ásamt fleira fólki en börn hans, þau Karen og Anton, höfðu meiri áhuga á að moka snjónum upp í fötur en að renna sér á sleðum. myndvinnsla akureyri. snjómokstur og sleðaferð á víkurskarði. litur. mbl. kristjan.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar