Afmælismót Illuga

Ásdís Ásgeirsdóttir
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Afmælismót Illuga

Kaupa Í körfu

SKÁK - Grandrokk, Reykjavík Helgi og Ehlvest sigra á afmælismóti Iluga STÓRMEISTARARNIR Helgi Ólafsson og Jan Ehlvest urðu efstir og jafnir á firnasterku hraðskákmóti sem Skákfélag Grandrokk hélt í kjölfar Reykjavíkurskákmótsins. Mótið var tileinkað Illuga Jökulssyni, sem varð fertugur 13. apríl, en hann hefur á löngum ferli sem blaðamaður og rithöfundur skrifað mikið um skák, bæði bækur og blaðagreinar. Verðlaunin á mótinu voru mjög vegleg, alls 2.000 dollarar, sem Grandrokk lagði til. Auk þess veitti Skákhúsið glæsileg aukaverðlaun. MYNDATEXTI: Nafnarnir Helgi Ólafsson og Helgi Áss Grétarsson voru meðal keppenda á Grandrokk.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar