Jón Ársæll og félagar

Þorkell Þorkelsson

Jón Ársæll og félagar

Kaupa Í körfu

Brot úr sögu þjóðar Á Stöð 2 er nú unnið að framleiðslu 10 þátta raðar um sögu Íslands á 20. öld og er þetta stærsta einstaka verkefni sem Stöð 2 hefur ráðist í. Hávar Sigurjónsson ræddi við Jón Ársæl Þórðarson, aðalhöfund þáttanna. JÓN ÁRSÆLL er handritshöfundur og umsjónarmaður en meðframleiðandi þáttanna er kvikmyndafyrirtækið Hugsjón undir stjórn Björns Brynjólfs Björnssonar. Ásamt Jóni Ársæli hafa sagnfræðinemar á lokaári, þau Karólína Stefánsdóttir og Ágúst Hauksson, unnið að undirbúningi þáttanna. MYNDATEXTI: Guðmundur Bjartmarsson kvikmyndatökumaður, Jón Ársæll Þórðarson, Haukur Ágústsson og Karólína Stefánsdóttir.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar