Landssímadeildin

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Landssímadeildin

Kaupa Í körfu

ENN eitt árið spá fyrirliðar, þjálfarar og forráðamenn liðanna í efstu deild KR-ingum sigri á Íslandsmótinu í knattspyrnu sem hefst í kvöld. Allt þar til í fyrra hafa þessir spádómar brugðist en KR-ingar fögnuðu sem kunnugt er langþráðum meistaratitli síðastliðið haust. Eins og undanfarin ár er það Landsíminn sem er aðalstyrktaraðili deildarinnar, sem nefnist Landsímadeildin. Myndatexti: Fyrirliðar liðanna í efstu deild - aftari röð frá vinstri: Guðjón Ásmundsson, Grindavík, Gunnar Oddsson, Keflavík, Þormóður Egilsson, KR, Valdimar Kristófersson, Stjörnunni og Ómar Valdimarsson, Fylki. Fremri röð: Steinar Þór Guðgeirsson, Fram, Hákon Sverrisson, Breiðabliki, Ingi Sigurðsson, ÍBV og Alexander Högnason, ÍA. Á myndina vantar fyrirliða Leifturs, Hlyn Birgisson.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar