Kringlubíó

Ásdís Ásgeirsdóttir
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Kringlubíó

Kaupa Í körfu

Langar biðraðir við miðasölur kvikmyndahúsanna gætu senn orðið minning ein. Síminn GSM og Sambíóin hafa tekið höndum saman og hleypt af stokkunum nýrri þjónustu sem gerir bíógestum kleift að kaupa aðgöngumiðann sinn með GSM-símanum í þar tilgerðum sjálfsölum. Andvirði bíómiðans gjaldfærist þá sjálfkrafa á símreikninginn og miðinn er í höfn. Þeir sem kjósa að nota gömlu aðferðina geta þó að sjálfsögðu enn farið í miðasöluna. Myndatexti: Baldvin kaupir miða í gegnum GSM.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar