Sprengja Hollandi

Sprengja Hollandi

Kaupa Í körfu

Eins og í stríðsmynd Bjarni Ketilsson og Arianne Bos sluppu naumlega úr sprengingunni í flugeldaverksmiðjunni í Enschede en heimili þeirra í 50 m fjarlægð frá verksmiðjunni er í rjúkandi rúst. Freysteinn Jóhannsson er í Hollandi og tók þau tali í gær. AÐ var ekkert á yfirborðinu sem minnti á ógnarsprenginguna í flugeldaverksmiðjunni í Enschede, þegar við sátum í gær í sólskinsgarði hjá þeim Bjarna Ketilssyni, myndlistarmanni, og Arianne Bos, sjúkraþjálfara. Undir niðri bjó minningin um sprengingar sem skóku líf þeirra, eyðilögðu heimili þeirra og halda enn fyrir þeim vöku. Þau bjuggu við Nachtegaalstræti, um 50 metra frá flugeldaverksmiðjunni og voru að koma heim úr verzlunarleiðangri á laugardaginn, með birgðir til Eurovisjónkvölds, sem skyldi haldið upp á íslenzkan máta. MYNDATEXTI: Hverfinu þar sem sprengingarnar urðu var lokað og sést lögreglumaður við ytri girðinguna. Mikið vatn fór í slökkvistarfið og þurfti að spara það í borginni í gær.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar