Kristnisýning í Þjóðmenningarhúsinu

Kristnisýning í Þjóðmenningarhúsinu

Kaupa Í körfu

Áhrif kristninnar á íslenskt samfélag Í hinu sögulega húsi við Hverfisgötu, Þjóðmenningarhúsinu, er einn af hinu fjölmörgu viðburðum sem efnt er til í tilefni af kristni í þúsund ár á Íslandi. Hver viðburður tekur á sinn hátt á málefninu og þessi sýning er þar engin undantekning. Inga María Leifsdóttir segir frá sögusýningunni Kristni í þúsund ár og ræðir við Guðmund Magnússon um þúsund ára þróun samfélagsins samfara kristni á Íslandi. Elsta skjal Íslands Sýningin er sett þannig upp, að gengið er í tímaröð eftir hlykkjóttum gangi þar sem margt ber fyrir augu. Upplestur og forn söngur heyrist óma. Á veggjum hanga veggspjöld um atburði og venjur á ólíkum tímum með ljósmyndum, textum og skýringum. Í glerborðum eru frumskjöl úr Þjóðskjalasafni, þar á meðal elsta skjal Íslands sem enn er til. Það er Reykjaholtsmáldagi, skrá yfir eignir kirkjunnar í Reykholti en elsti hluti skjalsins er frá árinu 1185 og sá yngsti frá seinni hluta 13. aldar. MYNDATEXTI: Reykholtsmáldagi, elsta íslenska skjal sem nú er til.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar