Hótel Tangi

Skapti Hallgrímsson

Hótel Tangi

Kaupa Í körfu

Hótel Tangi - Vopnafjörður - Árný Birna Vatnsdal og Gísli Arnar Gíslason Hjónin Árný Birna Vatnsdal og Gísli Arnar Gíslason tóku í vor við rekstri Hótels Tanga á Vopnafirði. Þau höfðu enga reynslu af slíku en hefur gengið vel í sumar og Gísli Arnar kveðst bjartsýnn á framhaldið. Árný og Gísli hafa rekið Olla- sjoppu á Vopnafirði í fáein ár. „Við vorum bæði í annarri vinnu þegar þetta kom upp með sjoppuna; eng- inn vildi taka hana að sér svo við stukkum til. Í vor gerðist það svo að þeir sem voru með hótelið fóru á hausinn, reksturinn var auglýstur og við ákváðum að taka þetta að okkur. Hreppurinn á húsnæðið en við erum með kaupleigurétt; getum keypt hús- ið innan ákveðins tíma og stefnum á að gera það.“

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar